Lágmúla 4 – 108 Reykjavíkkiktu við í heimsókn
569 7000hafðu samband
Miklaborg kynnir: Elliðabraut 6. Falleg 108,5 fm 2ja herbergja íbúð á efstu hæð. Bílskúrinn er innifalinn í fermetratölu og er 25,7 fm. að stærð. Geymsla á jarðhæð 5,6 fm. Stæði B51.
Bókið einkaskoðun hjá Jasoni Kr. Ólafssyni, löggiltum fasteignasala í síma 775 1515 og jko@miklaborg.is eða Íris síma 7-700-500 - iris@miklaborg.is
Myndir úr myndashowi eru úr annarri íbúð en sýnir dæmi um innréttingar.
Nánari lýsing : Anddyri með fataskáp. Svefnherbergi með skápum. Svalir úr stofu sem snúa til vesturs. Baðherbergi er flísalagt á gólfi og veggjum að hluta. Flísalögð sturta með glerskilrúmi. Þvottaaðstaða inná baðherbergi. Opið stofu og eldhúsrými. Í Eldhúsi innrétting með helluborði. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél í innréttingu. Auk þess er bakaraofn og örbylgjuofn. Svalir til vesturs. Íbúðinni fylgir bílskúr og sérmerkt stæði í lokaðir bílageymslu. Eignin skilast fullbúin án gólfefna.
Elliðabraut 4-10 - Glæsilegt fjölbýlishús á þessum eftirsótta stað í Norðlingaholti. Húsið skiptist í fjóra stigaganga sem hver er byggður í kringum inngarð. Húsið er teiknað af +Arkitektum og byggt af Þingvangi. Innandyra eru innréttingar og fataskápar frá framleiðandanum Voké – III. Fataskápar eru sérsmíðaðir með dökkbrúnni viðaráferð og ná upp í loft. Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðaðar, ljósar með dökkri kantlímingu og ná upp í loft. Öllum íbúðum fylgir sérgeymsla og sérmertk stæði í lokaðri bílageymslu. Sumum íbúðum fylgir einnig bílskúr.
Hverfið - Norðlingaholt er staðsett í nágrenni við Elliðavatn. Stutt er í öll helstu útivistarsvæði Reykjavíkur ss. Heiðmörk, Elliðaárdal, Rauðavatn og Rauðhóla. Mikill fjöldi stíga bæði fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur auk þess sem reiðstígar umlykja hverfið. Grunn- og leikskólar eru í göngufjarlægð frá Elliðabraut en hverfið er byggt utan um Norðlingaskóla.
Nánari lýsingu um verkefnið má finna á www.ellidabraut.is
Allar nánari upplýsingar veita:
Ómar Hvanndal lögmaður. og aðstm. fasteignasala s. 832-3200 - omar@miklaborg.is
Óskar H. Bjarnasen lögmaður og löggiltur fasteignasali s. 691-1931 - ohb@miklaborg.is
Jason Kr. Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 775-1515 - jko@miklaborg.is
Íris Arna Geirsdóttir í síma 7-700-500 - iris@miklaborg.is - sýnum daglega
Árni Davíð Bergs s. 625-2500 - arni@miklaborg.is