Lágmúla 4 – 108 Reykjavíkkiktu við í heimsókn
569 7000hafðu samband
Miklaborg kynnir: Elliðabraut 6, íbúð nr. 405. Glæsileg 3ja herbergja íbúð á efstu hæð. 48 fm þakverönd. Sérmerkt stæði í opinni bílageymslu fylgja eigninni.
Bókaðu einkaskoðun hjá Óskari Sæmann í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is
Nánari lýsing : Anddyri með góðum fataskáp. Inngangur af svölum.
Rúmgott opið stofu og eldhúsrými. Í Eldhúsi er stór eyja með helluborði. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél í innréttingu. Auk þess er bakaraofn og örbylgjuofn. Frá eldhúsi er útgengt út á 73 fm þaksvalir með 12 fm yfirbyggðum svölum.
Hjónaherbergi með miklu skápaplássi og útgengi út á svalir.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og veggjum að hluta. Flísalögð sturta með gler skilrúmi.
Frá stofu er útgengt á tvennar svalir.
Íbúðinni fylgir sérmerkt stæði (B55) í opinni bílageymslu auk 4,7 fm geymslu í kjallara.
Eignin skilast fullbúin án megin gólfefna.
Elliðabraut 4-10
Glæsilegt fjölbýlishús á þessum eftirsótta stað í Norðlingaholti. Húsið skiptist í fjóra stigaganga sem hver er byggður í kringum inngarð. Húsið er teiknað af +Arkitektum og byggt af Þingvangi. Innandyra eru innréttingar og fataskápar frá framleiðandanum Voké – III. Fataskápar eru sérsmíðaðir með dökkbrúnni viðaráferð og ná upp í loft. Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðaðar, ljósar með dökkri kantlímingu og ná upp í loft. Öllum íbúðum fylgir sérgeymsla og sérmertk stæði í opinni bílageymslu. Sumum íbúðum fylgir einnig bílskúr.
Hverfið
Norðlingaholt er staðsett í nágrenni við Elliðavatn. Stutt er í öll helstu útivistarsvæði Reykjavíkur ss. Heiðmörk, Elliðaárdal, Rauðavatn og Rauðhóla. Mikill fjöldi stíga bæði fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur auk þess sem reiðstígar umlykja hverfið. Grunn- og leikskólar eru í göngufjarlægð frá Elliðabraut en hverfið er byggt utan um Norðlingaskóla.
Nánari lýsingu um verkefnið má finna á www.ellidabraut.is
Allar nánari upplýsingar veita:
Óskar Sæmann Axelsson, löggildingarnemi s. 691-2312 - osa@miklaborg.is
Ómar Hvanndal lögmaður. og aðstm. fasteignasala s. 832-3200 - omar@miklaborg.is
Óskar H. Bjarnasen lögmaður og löggiltur fasteignasali s. 691-1931 - ohb@miklaborg.is
Jason Kr. Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 775-1515 - jko@miklaborg.is