Lágmúla 4 – 108 Reykjavíkkiktu við í heimsókn
569 7000hafðu samband
Miklaborg kynnir: 116,5 fm stílhrein og falleg þriggja herbergja íbúð (var upprunalega 4ra herbergja) á tveim hæðum innst í lokaðri húsagötu á efri hæð í austurenda með sérinngangi í barnavænu umhverfi. Sérinngangur. Auðvelt að bæta við svefnherbergi nr. 3.
Bókið skoðun Jason Kristinn Ólafsson, s. 775 1515 - jko@miklaborg.is löggiltur fasteignasali.
Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og góðum fataskápum. Gangur/hol með parketi á gólfi.
Nýlegt eldhús(2016) með flísum á gólfi, glugga, innréttingu og borðkrók. Inn af eldhúsinu er þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi og gluggum á tvo vegu. Út frá stofu eru stórar suðursvalir. Gestasnyrting með flísum á gólfi.
Teppalagður stigi upp á efri hæð.
Tvö rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfi, að hluta undir súð, með skápum. Samkvæmt teikningu var annað herbergið tvö svefnherbergi þannig að auðvelt er að breyta því aftur.
Baðherbergi með flísum á gólfi, flísum á veggjum, upphengdu salerni, innréttingu og baðkari.
Af stigapallinum er hleri upp á stórt geymsluloft sem nær yfir stórum hluta efri hæðar.
Í kjallara er 7,1 fm sérgeymsla með hillum.
Eigninni fylgir stæði í opinni bílageymslu á lóðinni. Ræktuð lóð. Sameign er góð.
Nánari upplýsingar: Jason Kristinn Ólafsson, s. 775 1515 - jko@miklaborg.is löggiltur fasteignasali.