
Innlit felst í því að seljendur fasteigna fá tækifæri til að kynna eign sína í gagnvirku vefumhverfi þar sem sýndar eru ljósmyndir af fasteigninni ásamt grunnmyndum.
Í Innliti geta notendur flutt sig úr einu rými húsnæðisins í annað og skoðað einstök rými út frá ýmum sjónarhornum. Þetta auðveldar kaupendum að átta sig á möguleikum viðkomandi eignar og hvernig hún hentar þeim út frá fjölskyldustærð, skipulagi og öðru.
Innlit er fyrir þína eign.